10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Framkvæmdastjórn ÖBÍ lýsir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun níu lífeyrissjóða að skerða eða afnema að fullu örorkulífeyri á annað þúsund örorkulífeyrisþega.
Gangi ákvörðun lífeyrissjóðanna eftir fer í gang spírall sem á stuttum tíma mun hreinsa viðkomandi sjóðsfélaga út úr lífeyrissjóðakerfinu og yfir á almannatryggingakerfið með tilheyrandi óþægindum og skerðingu fyrir öryrkja. Um slíka tilfærslu réttinda frá lífeyrissjóðum yfir á ríkið hefur engin samfélagsleg umræða átt sér stað.
Það vekur furðu að umræddir lífeyrissjóðir skuli fara fram með þessum hætti á sama tíma og verkefnahópur á vegum forsætisráðuneytisins, með fulltrúum stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins, ÖBÍ og lífeyrissjóða, vinnur að tillögum sem m.a. lúta að stóraukinni endurhæfingu og atvinnuþátttöku öryrkja.
Eru aðgerðir umræddra lífeyrissjóða ekki til þess fallnar að skapa traust milli aðila sem er forsenda þess að hægt sé að vinna að sameiginlegum tilllögum með þátttöku öryrkja í samfélaginu og á vinnumarkaðnum að leiðarljósi. Þá verður ekki séð að staða viðkomandi lífeyrissjóða gefi tilefni til slíkra aðgerða sem einkum beinast að tekjulægsta fólkinu.
Framkvæmdastjórn ÖBÍ mun fela lögmanni að kanna réttarstöðu örorkulífeyrisþega sem hafa fengið tilkynningu um skerðingu eða afnám örorkulífeyris og hvetur þá sem hafa fengið tilkynningu þar um að senda afrit af henni til skrifstofu ÖBÍ, Hátúni 10, 105 Reykjavík.
Reykjavík, 12. september 2007
Framkvæmdastjórn ÖBÍ
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri, sími 530 6700/896 3445
Ef þið hafið fengið tilkynningu frá lífeyrissjóðum um afnmám eða skerðingu örorkulífeyris þá eruð þið beðin að koma afriti af bréfinu til skrifstofu ÖBÍ.
The post Ályktun framkvæmdastjórnar ÖBÍ appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.