10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2019 verða afhent á Alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember n.k. Á eftirfarandi slóð http://www.un.org/en/events/disabilitiesday/ má lesa nánar um daginn en markmiðið með deginum er meðal annars að minna okkur á skuldbindingu okkar um að vinna saman að betri og sjálfbærari heimi, þar sem við njótum öll sömu réttinda.
Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi flokka fyrir 15. september 2019.
Verðlaunaflokkarnir eru fjórir.
Flokkur:
Einstaklinga
Fyrirtækja og stofnana
Umfjöllunar og kynninga
Verkefni innan aðildarfélaga ÖBÍ
Nánar um verðlaunin:
Verðlaunin eru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og með því stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Sjálfsagt er að tilnefna sömu aðila og áður hafa verið tilnefndir ef vitað er að þeir séu vel að verðlaununum komnir.
Vinsamlegast sendið tilnefningar rafrænt á eyðublaði sem finna má á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni: https://www.obi.is/…/hvatningar…/hvatningarverdlaun-eydublad
Einnig má prenta eyðublaðið út og senda í hefðbundnum pósti til Kristínar M. Bjarnadóttur starfsmanns nefndarinnar á skrifstofu ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Félög og félagasamtök eru hvött til að vekja athygli félagsmanna sinna og velunnara á verðlaununum og leita til þeirra um tilnefningar, s.s. með útsendingu fjölpósts og tengingu ofangreindrar slóðar inn á heimasíðu félagsins eða á facebook hóp. Það er einlæg von okkar að við öll, aðildarfélögin og ÖBÍ hjálpist að við að gera daginn sem glæsilegastan.
The post Hvatningarverðlaun ÖBÍ appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.