10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Miðvikudagana 11. og 18. apríl kl. 17-21 mun Stuðningsnet Sjúklingafélaganna halda námskeið fyrir verðandi Stuðningsfulltrúa. Stuðningsnet sjúklingafélaganna býður upp á jafningjastuðning fyrir fólk sem glímir við erfiða sjúkdóma og aðstandendur þeirra, en Samtök sykursjúkra ásamt 13 öðrum sjúklingafélögum mynda netið. Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði sem þarft er að hafa í huga þegar veita á jafningjastuðning ásamt því að stuðningsfulltrúum stendur til boða handleiðsla og endurmenntun að loknu námskeiði.
Mikilvægt er að sækja um að gerast stuðningsfulltrúi á heimasíðu Stuðningsnetsins áður en námskeið hefst. Umsjónaraðili Stuðningsnetsins mun hafa samband og taka viðtöl við þá sem sótt hafa um að gerast stuðningsfulltrúar í aðdraganda námskeiðsins. Auk þess mun viðkomandi sjúklingafélag boða stuðningsaðila á sinn fund til að fara yfir þjónustu og starfsemi félagsins. Fyrir þá sem þegar hafa sótt um að gerast stuðningsfulltrúar og verið í sambandi við sitt félag þá má skrá sig á námskeiðið hér. Athugið að námskeiðsgjaldið er greitt af samtökunum.
The post Námskeið fyrir stuðningsfulltrúa appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.