10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Námskeið í samstarfi við Landspítala og Samtök sykursjúkra. Unnið í samstarfi við Samtök sykursjúkra og Landspítalann og er kennt af færustu sérfræðingum, hjúkrunarfræðingi, sjúkraþjálfara og næringarfræðingi. Félagar í aðildarfélögum ÖBÍ og SÍBS fá 3.000 kr. aflátt af námskeiðunum. Sykursýki 2, Heilsa, næring og mataræði Þrjú námskeið sem hefjast mánudaginn 12. september, mánudaginn 24. október og þriðjudaginn 1. nóvember. Eftir námskeið eiga þátttakendur að geta sagt frá hvað sykursýki er, fylgikvillum hennar og mikilvægi blóðsykurstjórnunar, auk þess að setja fram sín eigin markmið varðandi mataræði, hreyfingu og aðra þætti. Fullt verð kr. 18.950. Heilsa, mataræði og hreyfing Hefst mánudagurinn 31. október. Námskeiðið skiptist í tvo hluta þar sem fjallað er um mataræði annars vegar og hreyfingu hins vegar. Ráðleggingar um mataræði og sérstaklega rætt um sykurneyslu, þátttakendur fá heimaverkefni að vinna milli tíma. Fullt verð kr. 14.250. Nánari upplýsingar og skráning: www.sibs.is Okkar félagsmenn fá sem sagt kr.3000 afslátt af námskeiðsgjaldi og aðrir fá 10% afslátt ef þeir skrá sig í ágúst.
The post Námskeið SÍBS, afsláttur fyrir okkar félagsmenn appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.