10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
“Foodloose: Ráðstefna um sykur, fitu og nútíma mataræði – rúmlega 45% afsláttur fyrir félagsmenn Samtaka sykursjúkra” Hvað ef það sem við höfum haldið um mataræði, offitu og lífsstílssjúkdóma er rangt? Það hefur ekki örugglega farið framhjá neinum að það er að hellast yfir okkur faraldur krónískra sjúkdóma með offitu, sykursýki og hjarta- og æðasjúkdóma í fararbroddi. Þessi þróun hófst fyrir alvöru fyrir nokkrum áratugum og hefur haldið áfram þrátt fyrir tilraunir stjórnvalda um allan heim til að stemma stigu við vandanum. Hin almenna sýn á mataræði og heilbrigði hefur einfaldlega verið sú að einstaklingar þurfi einfaldlega að borða færri kaloríur, helst í formi minni fitu, og hreyfa sig meira til að halda sér heilbrigðum og í kjörþyngd. Reynsla margra og rannsóknir síðustu ára benda hins vegar til þess að málið sé ekki svona einfalt – að þetta sé ekki bara spurning um hvað líkaminn geri við matinn (orkuna), heldur hvað maturinn gerir líkamanum: mismunandi matvæli hafa mismunandi áhrif á hormón og efnaskipti líkamans. Þann 26. maí nk verður haldin heilsdagsráðstefna í Eldborgarsal Hörpunnar sem tekur þessi mál fyrir. Félagsmenn Samtaka sykursjúkra fá 45% afslátt af ráðstefnugjaldi. Við skráningu sláið þið einfaldlega inn kóðann #FL2016BHEALTHY og mun þá afslátturinn sjálfkrafa koma inn. Minnum einnig á stéttarfélagsstyrki. Á mælendaskrá eru heimsþekktir fyrirlesarar, m.a.: Gary Taubes meðstofnandi Nutrition Science Initiative og höfundur “Why We Get Fat” Tim Noakes læknir og prófessor í íþróttavísindum og þjálfun við Cape Town háskóla í S-Afríku og höfundur ” The Real Meal Revolution” Aseem Malhotra, einn þekktasti hjartalæknir Breta, sem m.a. hefur verið leiðandi fyrir samtökin “Action On Sugar” sem vinna að því að koma böndum á sykurneysluna þar. Fundarstýra er Marianne Demasi, þáttastjórnandi í Catalyst, vinsælasta vísindaþætti í ástralska sjónvarpinu og verndari ráðstefnunnar er Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands. Ýmsir vinklar verða skoðaðir, þám: Hvers vegna fitnum við? Hversu skaðlegur er sykur? Er mettuð fita slæm? Hvað vitum við um áhrif kólesteróls og insúlíns á hjartasjúkdóma? Hver eru áhrif lágkolvetnamataræðis eða grænmetisfæðis á líkamann? Hvað annað þurfum við að hugsa um til að viðhalda eigin heilbrigði og vellíðan? Þetta er mál sem varðar alla og enginn sem hefur áhuga á heilsu, sinni eigin eða annarra, ætti að missa af. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og skráningu að finna á www.foodloose.is
The post Ráðstefna um sykur, fitu og nútíma mataræði appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.