10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Rannsókn á afstöðu Íslendinga til siðferðis og heiðarleika í íþróttum Kæru viðtakendur Ég þakka öllum sem hafa brugðist vel við þeirri ósk okkar að taka þátt í könnun meðal íslensks almennings um afstöðu hans til siðferðis og heiðarleika í íþróttum. Þá sem eru nýir býð ég velkomna til leiks. Íþróttir eru án alls vafa mikilvægur þáttur í samfélagi okkar, bæði sem uppeldistæki og forvarnartól og sem afl til samstöðu og þjóðarvitundar, auk skemmtana-gildis. Það er okkur afar mikilvægt að fá sem stærstan og breiðastan hóp til að taka þátt í rannsókninni því að tilgangurinn með henni er að fá í hendur áreiðanlegar upplýsingar um skoðanir fólks og vilja til að unnt verði að auðga og nýta íþróttastarfið til góðra hluta og losa það við lesti og neikvæða sprota sem nokkuð hefur borið á í umræðunni. Einnig þurfa þeir sem móta stefnuna í íþróttamálum, þar á meðal fjárveitingar opinberra aðila, á sem bestum gögnum að halda um vilja þjóðarinnar. Undirbúningur könnunarinnar var í fullum gangi nú í sumar og verður fram á haust. Tveir starfsmenn hafa unnið við hana auk mín en ég er svo ábyrgðarmaður og stjórnandi, starfandi aðjúnkt við Háskóla Íslands og doktor í íþróttafræðum. Nú er verið að safna fólki sem er tilbúið til að taka þátt í rannsókninni, minnst 2.000 manns úr ýmsum lögum samfélagsins, 18 ára og eldri. Mig vantar sárlega þátttakendur úr hópi öryrkja svo að ég bið ykkur að bregðast hratt og vel við. Þótt allir sem við höfum náð sambandi við taki vel í þetta vantar enn fólk sem er tilbúið til að gefa málefninu 15-20 mínútur síðar í haust og svara um 40 spurningum um það. Rannsóknin verður nafnlaus og þeir sem hafa samþykkt að vera með fá senda vefslóð sem þeir geta farið inn á til að taka þátt þegar þeim hentar. Þeir sem ekki hafa haft tök á að svara fyrri bréfum okkar geta enn verið með nú þegar um hæg¬ist eftir sumarfríin. Þið getið sent þátttökusamþykki með tölvupósti til mín (gsaem@hi.is) þar sem fram kemur nafn, sími, netfang, starfsheiti og aldur. Einfaldara getur það ekki verið! Til að fá nánari upplýsingar og fylgjast með eruð þið velkomin inn á facebook-síðu rann-sóknarinnar: https://www.facebook.com/rannsokn/. Félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki sem fá þetta bréf eru vinsamlegast beðin um að framsenda þetta bréf til félagsmanna og starfsmanna sinna, hafi þeir tök á því, þannig að einstaklingarnir sjálfir geti sent okkur þátttökusamþykki, vilji þeir vera með. Með hlýrri kveðju, Dr. Guðmundur Sæmundsson aðjunkt, Háskóla Íslands
The post Rannsókn um heiðarleika í íþróttum appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.