10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
SÍBS Líf og heilsa
er forvarnaverkefni um heilbrigði og lífsstíl þar sem SÍBS ásamt Hjartaheill
, Samtökum lungnasjúklinga
og Samtökum sykursjúkra
bjóða almenningi ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög. Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.
Boðið verður upp á heilsufarsmælingar á Norðurlandi Vestra 16.-18. október:
Mánudagur 16. október 2017
kl. 09–12
Hvammstangi, h
eilsugæslan
, Nestún 1
kl. 14–17 Blönduós, h
eilsugæslan
, Flúðabakka 2
Þriðjudagur 17. október 2017
kl. 10–11
Hofsós, h
eilsugæslan
, Suðurbraut 15
kl. 14–16
Skagaströnd, h
eilsugæslan
, Ægisgrund 16
Miðvikudagur 18. október 2017
kl. 08–15
Sauðárkrókur, h
eilsugæslan
, Sauðárhæðum
Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan, en ekki einungis að vera laus við sjúkdóma og örorku. Fyrir einstaklinginn skiptir heilsan öllu. Langvinnir sjúkdómar valda næstum 9 af hverjum 10 dauðsföllum í okkar heimshluta, og tengjast þeir flestir lífsstíl. Forvarnir eru eina skilvirka leiðin til að stemma stigu við þessu. Að forða einum einstaklingi frá tíu ára sjúkdómsferli eða ótímabærum dauða skilar samfélaginu yfir 70 milljón króna sparnaði mælt í vergri landsframleiðslu á mann. Heilbrigði er því gríðarlegt hagsmunamál fyrir samfélagið
Til þess að kortleggja hvar aðgerða er þörf í forvarnamálum er samhliða mælingum á blóðgildum lögð fyrir könnun um heilsufar og lífsstíl sem tekur á helstu áhrifaþáttum langvinnra, lífsstílstengdra sjúkdóma. SÍBS Líf og heilsa má þannig nota til að meta stöðuna í hverju sveitarfélagi, stofnun eða vinnustað fyrir sig. Um leið hlýtur hver einstaklingur innsýn í hvað betur megi fara í eigin heilsu og lífsstíl.
The post Samtök sykursjúkra á ferð um Norðurland ásamt SÍBS appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.