10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
VORFERÐ – VORFERÐ – VORFERÐ !!!
Laugardaginn 25.maí næstkomandi ætlum við að fara í okkar árlegu og vinsælu vorferð.
Lagt verður af stað með rútu úr Hátúninu kl.9,30
Keyrt í Borgarfjörðinn og stoppað á Hvanneyri þar sem við fáum leiðsögn um staðinn og skoðum landbúnaðarsafnið.
Þaðan verður haldið í Kraumu við Reykholt, þar sem við fáum hádegisverð og þeir sem vilja geta svo farið í böðin en hinir bara gengið um og skoðað þennan fallega stað.
Ef veður er gott er ætlunin að stoppa smá stund í bakaleiðinni við Kleppjárnsreyki þar sem hægt er að kaupa ferskmeti úr gróðurhúsunum.
Áætlað að koma aftur heim ca kl.16,30
Við verðum eins og síðustu ár í samfloti með félögum úr LAUF-félagi flogaveikra.
Þátttökugjald er kr.3000 fyrir fullorðna, frítt fyrir börn 12 ára og yngri, innifalið er rúta, hádegisverður, skoðun á Hvanneyri og bað í Kraumu.
Nauðsynlegt er að skrá sig í síðasta lagi fyrir hádegi mánudaginn 20.maí með tölvupósti í netfang: diabetes@diabetes.is og taka fram fjölda fullorðinna og fjölda barna, gott er einnig að tilgreina símanúmer.
The post VORFERÐ, 25.MAÍ appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.