Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur – styrkumsókn 2016 Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur og Öryrkjabandalag Íslands auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 9. maí næstkomandi. Umsóknareyðublað er á heimasíðu ÖBÍ www.obi.is. Eyðublöð fást einnig á skrifstofu Öryrkjabandalags Íslands, Sigtúni 42, Reykjavík. Styrkir eru veittir til:
- Öryrkja til hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum.
- Einstaklinga sem vilja sérhæfa sig til starfa í þágu fólks með þroskahömlun.
Styrkjum verður úthlutað 10. júní 2016. Allar nánari upplýsingar gefa Kristín Margrét Bjarnadóttir kristin@obi.is eða starfsmenn móttöku hjá ÖBÍ mottaka@obi.is og í síma 530 6700. Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur
The post appeared first on diabetes.