Áhugaverð ráðstefna

frida • Mar 31, 2022

Við viljum vekja athygli á ráðstefnunni, Farsælt samfélag fyrir alla, ráðstefna um tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi.

Við hvetjum alla áhugasama til þess að skrá sig og taka þátt í málstofum þar sem mótuð verður aðgerðaráætlun sem miðar að því að auka tækifæri allra barna og ungmenna til að taka þátt í íþróttastarfi á eigin forsendum.

 

Hér er hægt að skrá sig   Skráning á málþingið

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Hilton 7. apríl kl. 9-15:30 undir yfirskriftinni  Farsælt samfélag fyrir alla – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi. Á ráðstefnunni verður leitast við að koma auga á þær áskoranir sem við enn stöndum frammi fyrir þegar kemur að jöfnum tækifærum allra barna til íþróttaiðkunar. Þá munu fulltrúar notenda, íþróttafélaga, íþróttasambanda,  þjónustukerfi ríkis og sveitarfélaga vinna saman að mótun tillagna að aðgerðaáætlun um fulla þátttöku og virkni fatlaðs fólks á forsendum eigin getu.

Ráðstefnan er öllum opin og þátttaka er gjaldfrjáls.  Skráning á málþingið.

Dagskrá:

08.30-09.00        Skráning.

09.00-09.10         Tækifæri til breytinga.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags og vinnumarkaðsráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.

09.10-09.25         Samþætting í starfi með börnum og ungmennum – hvers vegna er það mikilvægt?

Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landsamtakanna Þroskahjálpar.

Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis.

09.25-09.45         Virk þátttaka í íþróttastarfi. Hvað er inngilding (inclusion)?- Hvaða sjónarhorn skipta máli?

Sunna Dögg Ágústsdóttir, verkefnastjóri ungmennaráðs Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.      

09.45-10.15         Börn og ungmenni í  íþróttastarfi – hverju getur það breytt?

Guðmundur Ingi Guðleifsson, fótboltamaður.

Sigrún Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna.

Hulda Sigurjónsdóttir, frjálsíþróttakona og peppari.

Hilmir Snær Örvarsson, skíðamaður. 

Sólný Pálsdóttir, móðir.

Ludvig Guðmundsson, endurhæfingarlæknir og formaður læknaráðs Íþróttasambands fatlaðra.                                                                      

10.15-10.35      Kaffi – Nútímafimleikar.   Iðkendur frá Íþróttafélaginu Ösp.

10.35-10.55         Hvar liggja tækifærin – hvað er hægt að gera til að auka virka þátttöku?

Umræðustjóri; Anna Karolína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og þróunarsviðs  Íþróttasambands fatlaðra.

Þátttakendur;  Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður Ungmennafélags Íslands.

10.55-11.30         Lausnagallerí – örkynningar- hvaða tækifæri sjá íþróttafélögin?

Sylvia Guðmundsdóttir, formaður Íþróttafélagsins Ægis, Vestmannaeyjum.

Kristinn Jónasson, körfuboltaþjálfari hjá Haukum í Hafnarfirði.

Eiríkur Helgason, hjólabrettamaður Akureyri.

Gréta Brands, knattspyrnuþjálfari barna hjá FH.

Gunnar Pétur Harðarson, einkaþjálfari og Melkorka Rán Hafliðadóttir, frjálsíþróttaþjálfari.

Eva Gunnarsdóttir, fimleikaþjálfari hjá Gerplu.

Hjördís Baldursdóttir og Hámundur Helgason íþróttastjórar hjá Keflavík og Ungmennafélagi Njarðvíkur.

11.30-12.05         Lausnagallerí – örkynningar um verkefni sem hafa skilað árangri.    

Heilsuefling í Glaðheimum, Karitas S. Ingimarsdóttir, íþróttafræðingur.

Næring og íþróttir, Birna Varðardóttir, næringarfræðingur.

Íþróttabúnaður fyrir hreyfhamlaða, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, Íþróttasamband fatlðara.            

Listdans á skautum,  Helga Olsen, þjálfari og kennari.     

Körfubolti Special Olympics, Bára Fanney Hálfdánardóttir, sálfræðingur og þjálfari.

Lífsstíll og hreyfing á starfsbraut FB, Jóhann Arnarson, íþróttakennari.

Hreyfing og nám í Borgarhólsskóla, Elsa Skúladóttir, deildarstjóri stoðþjónustu og Berglind

Hauksdóttir, kennari.

12.05 – 12.15  Tökum flugið.   Magnús Orri  Arnarson, fimleikamaður. ,,Moa Produktion”.                                        

12.15 – 13.05   Matur og skemmtilegheit.

13.05 – 13.20   Hvað virkar í íþróttastarfi? – Hvað segja rannsóknirnar?

Dr. Ingi Þór Einarsson, Háskólinn í Reykjavík.  

13.20 – 13.30 Hvernig leysum við verkefnin? – Nýsköpun í verklagi þegar margir koma að.

Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir, verkefnastjóri ráðgjafar hjá Múlaþingi.

13.30 – 14.40 Málstofur – tillögur að góðum fyrirmyndum/lausnum í íþróttastarfi – hópavinna.

Ráðstefnugestir skipa sér í lið þar sem mótaðar verða hugmyndir.  

Þema – Félagsþjónustan –  Hvað getur félagsþjónustan gert?

Þema – Menntakerfið –  Hvað getur menntakerfið gert?

Þema – Íþróttahreyfingin- Hvað getur íþróttahreyfingin gert?

Þema – Heilbrigðiskerfið – Hvað getur heilbrigðisþjónustan gert?

14.40 – 15.10 Hvert förum við – næsti áfangi.

Yfirferð á næstu áföngum. Þór Garðar Þórarinsson, sérfræðingur í félags- og

 vinnumarkaðsráðuneytin

The post Áhugaverð ráðstefna appeared first on diabetes.

09 Jan, 2023
This is a subtitle for your new post
By frida 11 Oct, 2022
Hugmyndafundur ungs fólks fer fram á Grand Hotel laugardaginn 5. nóvember nk. frá kl. 12:00 til 15:00.   Fyrir hverja? Fötluð börn, þ.m.t. börn með ADHD, einhverfu, gigt og sykursýki... The post Hugmyndafundur ungs fólks appeared first on diabetes.
By frida 11 Oct, 2022
Hugmyndafundur ungs fólks fer fram á Grand Hotel laugardaginn 5. nóvember nk. frá kl. 12:00 til 15:00.   Fyrir hverja? Fötluð börn, þ.m.t. börn með ADHD, einhverfu, gigt og sykursýki... The post Hugmyndafundur ungs fólks appeared first on diabetes.
By frida 11 Oct, 2022
Kærar þakkir til ykkar sem gátuð mætt á umferðarþingið um daginn. Fyrir þau ykkar sem gátuð ekki mætt voru erindin tekin upp og eru nú komin á netið ásamt þeim... The post Auglýsing frá Samgöngustofu appeared first on diabetes.
By frida 11 Oct, 2022
Kærar þakkir til ykkar sem gátuð mætt á umferðarþingið um daginn. Fyrir þau ykkar sem gátuð ekki mætt voru erindin tekin upp og eru nú komin á netið ásamt þeim... The post Auglýsing frá Samgöngustofu appeared first on diabetes.
By frida 27 Sep, 2022
skrifstofa félagsins verður lokuð fimmtudaginn 29.september vegna sumarleyfis The post Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 29.sept appeared first on diabetes.
By frida 27 Sep, 2022
skrifstofa félagsins verður lokuð fimmtudaginn 29.september vegna sumarleyfis The post Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 29.sept appeared first on diabetes.
By frida 20 Sep, 2022
ÖBÍ slær nýjan tón   ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta... The post ÖBÍ réttindasamtök – ný ásýnd appeared first on diabetes.
By frida 20 Sep, 2022
ÖBÍ slær nýjan tón   ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta... The post ÖBÍ réttindasamtök – ný ásýnd appeared first on diabetes.
By frida 20 Sep, 2022
SÍBS kynnir nýtt verkefni sem fengið hefur heitið Heilsumolar. Heilsumolar eru örmyndbönd með góðum ráðum um hvað hægt er að gera til að bæta heilsu og líðan og eiga erindi... The post Heilsumolar SÍBS appeared first on diabetes.
More Posts
Share by: