10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Undanfarin ár hefur verið mikið í umræðunni sú mikla fjölgun sem orðið hefur í tilfellum svonefndra lífsháttatengdra sjúkdóma. Einn þessara sjúkdóma er sykursýki af tegund 2. Áætlaður fjöldi þeirra sem greindir hafa verið með þann sjúkdóm hér á landi er um 5000-7000 manns. Rannsóknir á hinum norðurlöndunum benda til að gera megi ráð fyrir að fyrir hvern greindan séu tveir aðrir sem ganga með sjúkdóminn án þess að vita af því. Þetta fólk verður samfélaginu mjög dýrt því sykursýki geta fylgt mjög alvarlegir, og þar með dýrir, fylgikvillar, svo sem æða-, tauga-, augn- og nýrnaskemmdir. Sykursýkin greinist þá hjá þessum einstaklingum þegar þeir leita læknis vegna áhrifa fylgikvillanna.
Alþjóðasamtök sykursjúkra hafa um árabil haldið hátíðlegan Alþjóðadag sykursjúkra hinn 14.nóvember og nú hafa Sameinuðu Þjóðirnar viðurkennt þennan dag formlega sem Alþjóðlegan dag Sameinuðu Þjóðanna til eflingar baráttunni gegn sykursýki, og hefur dagurinn þá sömu stöðu og t.d. Alnæmisdagurinn o.fl. Um allan heim verða stórhýsi lýst upp með bláa litnum, lit IDF, Alþjóðasamtaka Sykursjúkra, og hefur Reykjavíkurborg fallist á að lýsa upp Höfða með bláu ljósi af þessu tilefni. Samtök Sykursjúkra ætla, eins og undanfarin ár, að bjóða almenningi upp á blóðsykurmælingar og fræðslu um sjúkdóminn í Smáralind laugardaginn 15. nóvember næstkomandi kl. 13-17. Á sjálfan alþjóðadaginn, 14. nóvember, munum við vera í Ráðhúsi Reykjavíkur og bjóða borgarfulltrúum og starfsmönnum ráðhússins upp á að láta mæla hjá sér blóðsykur og vekja þannig athygli þeirra á þessum sjúkdómi sem er ört vaxandi vandi hér á landi sem annars staðar á Vesturlöndum. Góðu fréttirnar eru nefnilega þær að hægt er að spyrna við fótum með öflugum forvörnum. Með því að hvetja almenning til heilbrigðari lífshátta má minnka þann gífurlega kostnað sem af þessum sjúkdómi hlýst, því vitað er að offita, hreyfingarleysi, streita, hátt kólesteról og hár blóðþrýstingur eykur verulega líkurnar á því að menn þrói með sér sykursýki af tegund 2.
Stjórn Samtaka sykursjúkra
The post Alþjóðadagur sykursjúkra appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.