10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Fréttabréf
Samtaka sykursjúkra
Hátúni 10b, 105 Reykjavík, Sími 562-5605,
Netfang diabetes@diabetes.is
Heimasíða www.diabetes.is
nóv. 2011. Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Sigríður Jóhannsdóttir.
Við eigum afmæli
Samtök sykursjúkra voru stofnuð 25. nóvember 1971 og eru því 40 ára á þessu ári.
Af því tilefni bjóðum við félögum og öðrum velunnurum til afmælisfagnaðar í Háteigi á 4. hæð á Grandhóteli við Sigtún.
Föstudaginn 25. nóvember klukkan 17:30
ÁVÖRP – TÓNLIST – LÉTTAR VEITINGAR
Félagar fjölmennum og eigum saman góða stund
Vegna afmælishátíðar verður enginn jólafundur í ár.
Samtök Sykursjúkra 40 ára
Samtökin voru stofnuð 25. nóvember 1971. Á þessum fjörutíu árum hefur ýmislegt áorkast en margt er enn ógert og mikið starf framundan þar sem þjóðin eldist mjög hratt og breyttir lifnaðarhættir hafa stuðlað að aukinni tíðni sykursýki og enn mun tíðnin aukast ef spár reynast réttar.
Markmið félagsins hafa verið skýr frá upphafi og hefur fræðslustarfið ávallt verið í öndvegi. Félagið hefur fylgt því eftir með fræðslufundum og útgáfu á ýmiskonar fræðsluefni. Jafnvægi, tímarit samtakanna hefur komið sleitulaust út síðan 1974 með örfáum undantekningum. Stofnun Göngudeildarinnar er án efa einn merkasti áfanginn í sögu samtakanna. En ávallt þarf að vera á verði og nú er það hlutverk samtakanna að vinna af ötulleik að því að Göngudeild sykursjúkra búi ætíð við fullnægjandi starfsskilyrði. Vinna þarf að því að áhöld og efni sem þarf við meðferð sjúkdómsins verði áfram niðurgreidd af hinu opinbera.
Það er aldrei brýnna en nú að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur og sækja fram á þeirri braut sem mörkuð var í upphafi.
Kæru félagsmenn
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Vetrargöngur 2012
Sunnudagar kl 13:00
15.janúar Breiðholtskirkja Þangbakka 5
29.janúar K.R.íþróttafélag Frostaskjóli 2
12.feb. K.F.U.M.og K.F.U.K. Holtavegi 28
26.feb. Valsheimilið Hlíðarenda
4.mars H.K.íþróttafélag Skálaheiði 2, Kópavogi
18.mars Verslunin Víðir Garðatorgi, Garðabæ
1.apríl Grótta-Seltjarnarnesi Bílastæðinu
15.apríl Félagsheimilið Hlégarður Háholti 2, Mosfellsbæ
29.apríl Hrafnista DAS Hraunvangi 7, Hafnarfirði
Kveðja Helga Eygló og gönguhópurinn
The post Fréttabréf Nóvember appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.