10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Skipulagning vegna haustferðarinnar sem farin var laugardaginn 13. September hefur verið í fullum gangi. Hefur verið leitað eftir tilboðum í ferðina sjálfa, skoðunarferðir og annað tilheyrandi. Fréttir af ferðinni og myndir koma inn síðar.
Undirbúningur vegna alþjóðadags sykursjúkra þann 14. Nóvember er nú hafinn. Stefnt er að árlegri blóðsykursmælingu í Smáralind laugardaginn 15. Nóvember og er verið í óða önn við að útvega það sem til þarf svo sem blóðsykursmæla, borðbúnað og ýmsar kynningarvörur.
Hluti stjórnarmanna er nýlega komin heim af árlegri ráðstefnu samtaka sykursjúkra á norðurlöndunum sem haldin var í Stokkhólmi síðustu helgina í ágúst. Nánar verður fjallað um ferðina í Jafnvægi tímariti samtakanna.
Verið er að skoða hvaða efni verður tekið fyrir á fræðslufundum vetrarins og einnig standa yfir viðræður við mögulega fyrirlesara. Ábendingar félagsmanna eru vel þegnar og er bent á netfang samtakanna diabetes@diabetes.is
Sigríður Jóhannsdóttir formaður Samtaka sykursjúkra var í viðtali á Bylgjunni fyrir skemmstu þar sem fyrirspurn hafði borist frá hlustanda varðandi það hvort samtökin hafi beitt sér fyrir niðurgreiðslum á stinningarlyfinu Viagra.
Stjórnin
The post Fréttamoli stjórnar appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.