Hvatningarverðlaun ÖBÍ

frida • Jun 04, 2020

Frá undirbúningsnefnd Hvatningarverðlauna ÖBÍ, allir geta sent inn tilnefningar og eins margar og hver vill.

Reykjavík 02.06.2020
Ágæti viðtakandi
Bréf þetta er sent á formenn og framkvæmdastjóra aðildarfélaga ÖBÍ og annarra félaga og félagasamtaka sem málið varðar en tilefnið er að minna á Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2020 sem afhent verða á Alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember n.k. Á eftirfarandi slóð http://www.un.org/en/events/disabilitiesday/ má lesa nánar um daginn en markmiðið með deginum er meðal annars að minna okkur á skuldbindingu okkar um að vinna saman að betri og sjálfbærari heimi, þar sem við njótum öll sömu réttinda.
Óskað er eftir tilnefningum frá ykkur í eftirfarandi flokka fyrir 15. september 2020.
Verðlaunaflokkarnir eru fjórir. Flokkur: Einstaklinga
Fyrirtækja og stofnana
Umfjöllunar og kynninga
Aðildarfélaga ÖBÍ
Nánar um verðlaunin:
Verðlaunin eru veitt þeim sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu og með því stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Sjálfsagt er að tilnefna sömu aðila og áður hafa verið tilnefndir ef vitað er að þeir séu vel að verðlaununum komnir.
Vinsamlegast sendið tilnefningar rafrænt á eyðublaði sem finna má á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni: https://www.obi.is/is/um-obi/hvatningarverdlaun-obi/hvatningarverdlaun-eydublad
Einnig má prenta eyðublaðið út og senda í hefðbundnum pósti til Kristínar M. Bjarnadóttur starfsmanns nefndarinnar á skrifstofu ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Félög og félagasamtök eru hvött til að vekja athygli félagsmanna sinna og velunnara á verðlaununum og leita til þeirra um tilnefningar, s.s. með útsendingu fjölpósts og tengingu ofangreindrar slóðar inn á heimasíðu félagsins eða á facebook hóp. Það er einlæg von okkar að við öll, aðildarfélögin og ÖBÍ hjálpist að við að gera daginn sem glæsilegastan.
Undirbúningsnefndina skipa:
Alvar Óskarsson, MS félag Íslands
Fríða Rún Þórðardóttir, Astma og ofnæmisfélag Íslands
Helga Magnúsdóttir, Sjálfsbjörg lsh
Hrannar Björn Arnarson ADHD samtökin
Karl Þorsteinsson, Ás styrktarfélag
Vignir Ljósálfur Jónsson, HIV-Ísland
Leggjumst öll á eitt og vekjum mikla og jákvæða athygli á deginum.
Með kveðju,
Fríða Rún Þórðardóttir
Formaður undirbúningsnefndar Hvatningarverðlauna ÖBÍ

The post Hvatningarverðlaun ÖBÍ appeared first on diabetes.

09 Jan, 2023
This is a subtitle for your new post
By frida 11 Oct, 2022
Hugmyndafundur ungs fólks fer fram á Grand Hotel laugardaginn 5. nóvember nk. frá kl. 12:00 til 15:00.   Fyrir hverja? Fötluð börn, þ.m.t. börn með ADHD, einhverfu, gigt og sykursýki... The post Hugmyndafundur ungs fólks appeared first on diabetes.

Kærar þakkir til ykkar sem gátuð mætt á umferðarþingið um daginn. Fyrir þau ykkar sem gátuð ekki mætt voru erindin tekin upp og eru nú komin á netið ásamt þeim... The post Auglýsing frá Samgöngustofu appeared first on diabetes.

By frida 27 Sep, 2022
skrifstofa félagsins verður lokuð fimmtudaginn 29.september vegna sumarleyfis The post Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 29.sept appeared first on diabetes.
By frida 27 Sep, 2022
skrifstofa félagsins verður lokuð fimmtudaginn 29.september vegna sumarleyfis The post Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 29.sept appeared first on diabetes.
By frida 20 Sep, 2022
ÖBÍ slær nýjan tón   ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta... The post ÖBÍ réttindasamtök – ný ásýnd appeared first on diabetes.

SÍBS kynnir nýtt verkefni sem fengið hefur heitið Heilsumolar. Heilsumolar eru örmyndbönd með góðum ráðum um hvað hægt er að gera til að bæta heilsu og líðan og eiga erindi... The post Heilsumolar SÍBS appeared first on diabetes.
More Posts
Share by: