ÖBÍ réttindasamtök – ný ásýnd

frida • Sep 20, 2022

ÖBÍ slær nýjan tón

ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta mannsæmandi lífskjara og jafnra möguleika til sjálfstæðs lífs og virkrar samfélagslegrar þátttöku, óháð líkamlegu og andlegu atgervi. Fatlað fólk er í öllum fjölskyldum, öllum atvinnugreinum og á öllum skólastigum.

Með reglulegu millibili hafa áherslur og aðferðir ÖBÍ verið endurskoðaðar með tilliti til tíðaranda, stöðu réttinda og þeirra verkefna sem fyrir liggja. Hluti af því er að skoða ásýnd samtakanna og umgjörð. Nú er lokið slíkri endurmörkun til næstu ára og merki, útlit og tónn verið endurhönnuð til móts við nýja tíma. Samhliða þessum breytingum hefur nýr vefur ÖBÍ verið opnaður þar sem höfuðáherslan er á aðgengi, notendaupplifun og öfluga miðlun.

– – –

Nánar um nýja ásýnd

Aðalliturinn í nýrri ásýnd er fjólublár, sem er orðinn einkennislitur réttindabaráttu fatlaðs fólks víða um heim. Hann er alþjóðlegt tákn fyrir hugrekki og nýja nálgun í baráttunni fyrir jöfnum réttindum og samfélagslegri þátttöku á forsendum hvers og eins.

Merkið er kröftugt og mjúkt í senn. Skáskurður í einum upphafsstafnum minnir á að fatlað fólk er að jafnaði 15% mannfjöldans og að þótt vanti upp á að stafurinn b sé heill þá þjónar hann sínu hlutverki jafn vel og aðrir. Að auki fær skammstöfunin undirtitilinn “réttindasamtök” og sem undirstrikar það hlutverk samtakanna að sækja rétt fatlaðs fólks.

Nánar um nýjan tón

Um leið er með merkinu sleginn upphafstónn nýrrar hugsunar í markaðsefni ÖBÍ sem gengur út á áherslu á hina jákvæðu hluta. Þannig fá neikvæð forskeyti hvíld meðan jákvæða hlutanum er haldið fram. Lögð er áhersla á orkuna, jöfnuðinn, réttindin, meðan ör-, ó- og for- hverfa í bakgrunni. Málið er að útrýma þessum takmarkandi forskeytum, ef ekki eiginlega þá í það minnsta samfélagslega. Krafan er  ó réttlæti og  ó jöfnuður og sterkasta vopnið í baráttunni er  ó sýnileiki .

The post ÖBÍ réttindasamtök – ný ásýnd appeared first on diabetes.

09 Jan, 2023
This is a subtitle for your new post
By frida 11 Oct, 2022
Hugmyndafundur ungs fólks fer fram á Grand Hotel laugardaginn 5. nóvember nk. frá kl. 12:00 til 15:00.   Fyrir hverja? Fötluð börn, þ.m.t. börn með ADHD, einhverfu, gigt og sykursýki... The post Hugmyndafundur ungs fólks appeared first on diabetes.

Kærar þakkir til ykkar sem gátuð mætt á umferðarþingið um daginn. Fyrir þau ykkar sem gátuð ekki mætt voru erindin tekin upp og eru nú komin á netið ásamt þeim... The post Auglýsing frá Samgöngustofu appeared first on diabetes.

By frida 27 Sep, 2022
skrifstofa félagsins verður lokuð fimmtudaginn 29.september vegna sumarleyfis The post Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 29.sept appeared first on diabetes.
By frida 27 Sep, 2022
skrifstofa félagsins verður lokuð fimmtudaginn 29.september vegna sumarleyfis The post Skrifstofan lokuð fimmtudaginn 29.sept appeared first on diabetes.
By frida 20 Sep, 2022
ÖBÍ slær nýjan tón   ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta... The post ÖBÍ réttindasamtök – ný ásýnd appeared first on diabetes.
By frida 20 Sep, 2022
SÍBS kynnir nýtt verkefni sem fengið hefur heitið Heilsumolar. Heilsumolar eru örmyndbönd með góðum ráðum um hvað hægt er að gera til að bæta heilsu og líðan og eiga erindi... The post Heilsumolar SÍBS appeared first on diabetes.

More Posts
Share by: