10 Street Name, City Name
Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Retina Risk App – Áhættureiknir fyrir sykursjúka
Nýlega hefur verið sett á markað nýtt app, Retina Risk, sem er reiknivél sem aðstoðar sykursjúka við að greina einstaklingsbunda áhættu þeirra á augnsjúkdómum og sjónskerðingu vegna sykursýki.
Um er að ræða byltingakennda tækninýjung sem er byggð á vísindalegum rannsóknum, bæði íslenskum og erlendum, þar sem 20.000 einstaklingar með sykursýki tóku þátt.
Retina Riskappið metur sjálfvirkt einstaklingsbundna áhættu sykursjúkra á því að fá augnsjúkdóm þar sem sjónin er í hættu (sighthreatning retinopathy). Hugbúnaðurinn reiknar einnig hvenær er skynsamlegt að einstaklingurinn komi aftur til augneftirlits í samræmi við einstaklingsbundna áhættu hvers og eins.
Appið hefur einnig að geyma almennan fróðleik varðandi sykursýki, augnsjúkdóma og aðra algenga fylgikvilla. Retina Riskappið er einstaklingsmiðað og einfalt í notkun.
Retina Risk appið er fáanlegt gjaldfrítt bæði fyrir iOS og Android í Apple Store og Google Play.
The post Retina Risk appið, frítt fyrir alla sem vilja fylgjast með áhættu gagnvart augnsjúkdómum appeared first on diabetes.
10 Street Name,
City Name Country, Zip Code
562-5605
mymail@mailservice.com
Sigtúni 42, 105 Reykjavík
Sími: 562-5605
Netfang: diabetes@diabetes.is
Styrktarreikningur: 0303-26-033354,
kennitala: 681174-0609
Skrifstofa félagsins er opin þriðjudaga og fimmtudaga frá klukkan 10 til 12.